Öryggisþjónusta Mubaraks lögð niður 16. mars 2011 00:45 umbætur Borgarar hafa gert áhlaup á húsnæði öryggisþjónustunnar síðustu daga og reynt að bjarga sönnunargögnum um brot stofnunarinnar. Fréttablaðið/AP
Innanríkisráðherra Egyptalands leysti í gær upp hinar illræmdu öryggissveitir Mubaraks. sem voru þekktar fyrir ofbeldi og mannréttindabrot. Í stað hennar verður skipuð ný þjóðaröryggisstofnun sem mun hafa umsjón með öryggismálum innanlands og berjast gegn hryðjuverkastarfsemi „í samræmi við stjórnarskrá og mannréttindasjónarmið“, eins og sagði í yfirlýsingu ráðherrans. Öryggissveitir Mubaraks voru helsta vopn hins brottrekna forseta á þeim nær 30 árum sem hann réði ríkjum. Með þeim gat hann fylgst með og barið niður allt andóf gegn stjórn hans. Eitt af helstu baráttumálum uppreisnarmanna á Tahrir-torgi var að þessar sveitir yrðu lagðar niður. Mubarak var settur af þann 11. febrúar síðastliðinn, en allt síðan þá hafa leiðtogar andófshreyfingarinnar haldið því fram að öryggisþjónustan hafi unnið gegn lýðræðisumbótum í landinu. Samkvæmt tilkynningu ráðherrans munu starfsmenn stofnunarinnar verða skipaðir á næstu dögum. - þj
Fréttir Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn Sjá meira