Íslenski boltinn

Ísland upp fyrir Færeyjar á FIFA-listanum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Óli Jóh getur leyft sér að brosa í dag.
Óli Jóh getur leyft sér að brosa í dag.
Sigurmark Kolbeins Sigþórssonar gegn Kýpur lyfti íslenska landsliðinu upp um 17 sæti á FIFA-listanum. Ísland er nú í 107. sæti á listanum en var í 124. sæti.

Ísland fer einnig upp um þrjú sæti í Evrópu og er nú í 45. sæti á Evrópulistanum.

Það gleður eflaust marga að Ísland er aftur komið upp fyrir Færeyjar á listanum en Færeyingar féllu úr 111. sæti niður í 125. sæti á nýjasta listanum.

Spánn er á toppi listans, Holland í öðru sæti og Þjóðverjar því þriðja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×