HK enn á lífi eftir annan 3-0 sigurinn í röð - Haukar unnu Leikni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. ágúst 2011 20:35 Eyþór Helgi Birgisson. Mynd/Anton
HK-ingar eru enn á lífi í 1. deild karla í fótbolta eftir 3-0 útisigur á ÍR í Mjóddinni í kvöld. HK hefði fallið í 2. deild með tapi alveg eins og í síðasta leik þegar HK-ingar unnu 3-0 sigur á BÍ/Bolungarvík. Þetta eru tveir fyrstu sigrar HK-liðsins í sumar. Haukar unnu á sama tíma 3-0 sigur á Leikni á Ásvöllum þar sem að Úlfar Hrafn Pálsson skoraði tvö fyrstu mörkin áður en Alieu Jagne innsiglaði sigurinn. Eyþór Helgi Birgisson skoraði öll mörk HK í 3-0 sigrinum á ÍR í kvöld þar af komu tvö fyrstu mörk hans úr vítum. Eyþór Helgi skoraði tvö mörk í sigrinum á Djúpmönnum og er því með fimm mörk í síðustu tveimur leikjum eftir að hafa aðeins skorað þrjú mörk í fyrstu þrettán leikjunum. Mörk Eyþórs komu á 23., 59. og 76. mínútu. HK er með 12 stig þegar þrjár umferðir eru eftir en þeir eru sjö stigum á eftir ÍR-ingum sem sitja í síðasta örugga sætinu. HK er nú aðeins einu stigi á eftir Leikni sem er í næstsíðasta sæti deildarinnar. Haukar komust upp í 3. sæti og eru nú þremur stigum á eftir Selfossi í baráttunni um annað sætið. Selfoss á leik inni á móti Víkingi Ó. á laugardaginn. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá vefsíðunni fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Segir ekki mikil gæði vera hjá ökumönnum í Formúlu 1 Formúla 1 Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Fleiri fréttir „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“