Tónlist

Borgaði til þess að losna við handrukkara

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Andri Freyr Viðarsson opnaði sig á gátt í útvarpsþættinum Vasadiskó á sunnudaginn. Þar greindi hann m.a. annars frá því að þegar hann vann á X-inu fyrir nokkrum árum hafi hann komið sér í veruleg vandræða hjá frægum handrukkara eftir ummæli sín um hann í útvarpinu. Þá var Andri með þátt á daginn undir leyninafninu Freysi sem var eins konar auka-sjálf hans. Freysi sleppti hlutum út úr sér umbúðarlaust og hikaði ekki við að tjá skoðun sína á hinum og þessum.

"Svo birtist þessi handrukkari niður á stöð og ætlaði rústa mér," sagði Freysi. "Mér leist nú illa á það og lét mig hverfa en þessi maður gaf sig ekki. Loks samdi félagi minn við hann að þiggja peninga til þess að leyfa mér að sleppa. Ég var eins og auli þegar hann kom að fá greitt. Kallaði svo á eftir honum; "já og ef þig vantar miða í bíó eða fríar plötur eða eitthvað... hringdu bara á mig!". Ég heyrði svo ekkert frá honum aftur."

Freysi lenti í alls kyns vandræðum vegna þess sem hann lét út úr sér í beinni útsendingu. Til dæmis mætti lögreglan í hljóðverið eftir að hann hafði hringt inn falska sprengjuhótun.

Andri mætti í liðinn "Selebb shuffle" þar sem þekktir einstaklingar mæta með mp3-spilarann sinn, setja á shuffle og taka ábyrgð á því sem kemur upp.

Lögin sem komu úr i-podnum hans Andra voru:

beck - ziplock bag

neil young - dont let it bring you down

david bowie - running gun blues

the brian jonestown - open heart surgery

the rolling stones - miss you

the bees - left foot stepdown

howlin wolf - i asked for water

the clash - career opportunity

foo fighters - monkey wrench

metallica - master of puppets

david bowie - sons of the silent age

fu manchu - solid hex

 

Fylgist með Vasadiskó á Facebook. Streymið svo þáttunum hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×