Hannes Þór Halldórsson: Þetta tók á taugarnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. júlí 2011 18:48 Hannes Þór Halldórsson. Mynd/Hag
Hannes Þór Halldórsson, markvörður KR, er kominn í bikarúrslitaleikinn á sínu fyrsta tímabili í Vesturbænum eftir að KR-liðið vann 4-1 sigur á BÍ/Bolungarvík í undanúrslitum Valitorsbikarsins á Ísafirði í kvöld. KR mætir Þór í bikarúrslitaleiknum sem fram fer 13. ágúst. „Þetta var strembið og tók á taugarnar. Við mættum bara mjög vel skipulögðu, ákveðnu og grimmu liði sem lokaði vel á okkur. Þeir áttu sínar sóknir og við þurftum að hafa fyrir hlutunum. Þeir skoruðu síðan algjört draumamark sem ég held að enginn mannlegur kraftur hefði varið," sagði Hannes í viðtali við Þröst Emilsson í KR-útvarpinu eftir leikinn. „Þetta var mjög erfiður leikur og við erum í skýjunum með að hafa klárað þetta. Við bjuggumst við mjög erfiðum leik hérna og ég held að leikurinn hafi spilast eins og við sáum fyrir okkur. Þeir voru með allan bæinn með sér og að spila stærsta leik ársins á Ísafirði. Þeir komu svipað grimmir og við bjuggumst við, mjög skipulagðir og svo með þennan þjálfara sem kann þetta alveg og hefur gert þetta áður. Það var frábært að klára þetta," sagði Hannes. „Það verður spennandi verkefni að mæta Þór í úrslitaleiknum. Þeir berjast eins og ljón og hafa komið mörgum á óvart í sumar með góðri spilamennsku. Þeir kláruðu náttúrulega ÍBV sem er eitt sterkasta lið landsins og hafa sýnt að þeir geta unnið hvaða lið sem er. Þeir munu refsa okkur ef við mætum ekki klárir. Ég hlakka mikið til og þetta verður veisla," sagði Hannes.
Íslenski boltinn Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sport Fleiri fréttir FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Sjá meira