Formúla 1

Mercedes styður Schumacher þrátt fyrir brösótt gengi

Michael Schumacher og Mercedes hafa ekki náð á verðlaunapall saman síðan Schumacher byrjaði að keyra með liðinu í fyrra.
Michael Schumacher og Mercedes hafa ekki náð á verðlaunapall saman síðan Schumacher byrjaði að keyra með liðinu í fyrra. Mynd: Getty Images
Nobert Haug, yfirmaður Mercedes í akstursíþróttum segir að Mercedes styðji veru Michael Schumacher sem ökumanns liðsins í Formúlu 1 heilshugar, þó gengi hans hafi ekki verið sem best. Hann gerði þriggja ára samning við liðið í fyrra. Honum gekk heldur illa í mótinu í Tyrklandi á sunnudaginn.

,,Ég skil afhverju fólk býst við toppárangri af Michael og Mercedes og það er samsvarandi vilji hjá okkur. Ef við skoðum tíma Michaels á æfingum og í keppninni, þá er hann að halda uppi góðum hraða", sagði Haug í frétt á autosport.com í dag.

Schumacher lenti í árekstri við annan ökumanna í öðrum hring mótsins, en Haug telur að hann hefði getað náð sjötta eða sjöunda sæti, en hann varð tólfti. Schumacher átti góðan sprett á lokaæfingu fyrir tímatökuna á laugardag og varð aðeins 0.001 sekúndu á eftir Sebastian Vettel, en náði ekki að endurtaka leikinn í tímatökunni.

Haug segir það ekki óskhyggju að Schumacher hafi hraðann sem til þarf, það sé staðreynd. Schumacher var ekki ánægður með útkomuna um helgina.

,,Ég skil að Michael skemmti sér ekki á sunnudaginn. Það er erfitt að keppa af krafti og ná tólfta sæti. Ég er sannfærður um að það verður gaman í Barcelona (næsta mót er á Spáni). Við höfum trú á liðinu og ökumönnum þess og við vinnum af festu að markmiðum okkar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×