Lífið

Smeygja sér í boxhanskana

aftur í hringinn Sylvester Stallone er á leiðinni aftur í hringinn.
aftur í hringinn Sylvester Stallone er á leiðinni aftur í hringinn.

Talið er að gömlu kempurnar Robert De Niro og Sylvester Stallone ætli að smeygja sér í boxhanskana á nýjan leik fyrir myndina Grudge Match sem er væntanleg í bíó árið 2012.

Báðir eru þeir þekktir fyrir að leika hnefaleikakappa. De Niro hlaut Óskarinn fyrir hlutverk sitt sem Jake La Motta í Raging Bull sem kom út 1980 og Stallone er auðvitað frægastur fyrir Rocky-myndirnar.

Grudge Match fjallar um tvo fyrrverandi boxara, Billy „The Kid" McGuigan og Henry „Razor" Sharp, sem ákveða að snúa aftur til að lumbra hvor á öðrum í síðasta sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×