Danir hagnast á grísku kreppunni 5. maí 2010 07:32 Samkvæmt útreikningum Nordea bankans mun gríska kreppan skila 5,7 milljörðum danskra kr. eða 128 milljörðum kr, aukalega í ríkissjóð Danmerkur í ár.
Það eru ekki margar þjóðir í Evrópusem beinlínis hagnast á grísku kreppunni. Það gera þó frændur vorir Danir. Þetta helgast af því að gengi dönsku krónunnar er bundið við gengi evrunnar. Frá því að gríski harmleikurinn komst á fullt skrið í vetur hefur gengi evrunnar fallið verulega og hið sama á við um dönsku krónuna. Þetta kemur útflutningsgreinum Danmerkur verulega til góða. Í frétt í Jyllands Posten um málið segir að samkvæmt útreikningum Nordea bankans mun gríska kreppan skila 5,7 milljörðum danskra kr. eða 128 milljörðum kr, aukalega í ríkissjóð Danmerkur í ár. Auk þess mun atvinnulausum í landinu fækka um 9.000 manns. Helge Pedersen aðalhagfræðingur Nordea segir að auk þessa sýni útreikningar þeirra að á næsta ári og þarnæsta muni útflutningsgreinar Dana hagnast um 10 milljarða danskra kr. eða 225 milljarða kr. aukalega vegna gengifalls dönsku krónunnar.
Mest lesið Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Spá hressilegri vaxtalækkun Viðskipti innlent Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Viðskipti innlent Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Neytendur Þrjú ráðin til Tryggja Viðskipti innlent Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Viðskipti innlent Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Viðskipti innlent Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira