Suður- Kóreumenn hættir við að kaupa Elkem í Noregi 25. október 2010 08:07
Stálfyrirtækið Posco í Suður-Kóreu er hætt við að kaupa Elkem í Noregi sem m.a. rekur járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Raunar segir forstjóri Posco að þeir hafi aldrei í alvöru verið að íhuga að kaupa Elkem.Vangaveltur hafa verið um kaup Posco á Elkem frá því í lok ágúst s.l. þegar skilja mátti orð forstjórans, Chung Joon-yang, sem svo að Posco væri að kanna möguleika á kaupunum. Nú segir forstjórinn að þeir hafi ekki athugað þetta náið og séu ekki í alvöru að velta kaupunum fyrir sér.Posco er þriðji stærsti stálframleiðandi heimsins en Elkem er meðal stærstu framleiðenda heimsins á járnblendi.Elkem er í eigu iðnaðarrisans Orkla í Noregi en Orkla hefur áður sagt að það vilji losna við Elkem úr eigu sinni. Verðmatið á Elkem er nokkuð misvísandi, að því er segir í frétt um málið á vefsíðunni e.24.no. Það liggur allt frá 3,4 til 15 milljarða norskra kr. eða allt að hátt í 300 milljarða kr.Hið mismunandi mat liggur í hvor sólarkísilframleiðsla Elkem, Elkem Solar, er reiknuð með í verðmatinu. Handelsbanken telur að járnblendihlutinn einn og sér sé 8 milljarða norskra kr. virði.
Mest lesið Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira