Lífið

Líf eftir Harry Potter

daniel radcliffe Leikarinn hlakkar til að prófa aðra hluti eftir að Harry Potter-ævintýrinu lýkur.
daniel radcliffe Leikarinn hlakkar til að prófa aðra hluti eftir að Harry Potter-ævintýrinu lýkur.

Daniel Radcliffe segir að hann geti loksins prófað aðra hluti sem leikari eftir að ævintýrinu um Harry Potter lýkur. Fyrri hluti kvikmyndarinnar Harry Potter and the Deathly Hallows verður frumsýndur í nóvember og sá síðari á næsta ári.

Þar með lýkur Harry Potter-kvikmyndaröðinni. Radcliff segir að leikur sinn í uppfærslunni á Equus árið 2007 hafi verið liður í undirbúningi fyrir önnur hlutverk en Harry Potter.

„Við vissum að það væri mikilvægt að slíta að hluta til tengslin við Potter á meðan myndirnar væru enn sýndar í staðinn fyrir að gera það að þeim loknum," sagði Radcliffe.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×