Lífið

Brooke segir börn vilja reglur

Brooke Shields segist ekki þurfa að stunda líkamsrækt eftir að hún varð móðir.
Brooke Shields segist ekki þurfa að stunda líkamsrækt eftir að hún varð móðir. MYND/Getty

Leikkonan Brooke Shields segist ekki þurfa að stunda líkamsrækt jafn grimmt nú þegar hún er orðin tveggja barna móðir því það sé næg líkamsrækt að hlaupa á eftir börnunum liðlangan daginn.

Hún segir börnin þó vel upp alin og að þau hafi gott af reglum. „Þau elska háttatímann því það eru ákveðnar reglur sem við fylgjum. Þau borða, baða sig og svo lesum við bók saman og förum að lokum með bænirnar. Þeim virðist líða vel þegar þau vita hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Ég held að þeim finnist þau öruggari ef þau búa við reglur."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×