Lífið

Vill líkjast Kurt Cobain

Hin unga Taylor Momsen er þreytt á því að vera líkt við Courtney Love, ekkju Kurts Cobain.
Hin unga Taylor Momsen er þreytt á því að vera líkt við Courtney Love, ekkju Kurts Cobain.

Hin unga Taylor Momsen, sem fer með hlutverk í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl, er einnig söngkona hljómsveitarinnar The Pretty Reckless og hefur henni gjarnan verið líkt við söngkonuna Courtney Love.

Í nýlegu viðtali segist Momsen ekki kunna við þá samlíkingu. „Ég vil ekki vera Courtney Love. Ég vil vera Kurt Cobain. Hann er stórkostlegur og tónlist hans er snilld. Fólk er stanslaust að líkja mér við Courtney Love af því að þeim finnst við klæða okkur svipað og erum báðar með ljóst hár."

Momsen er ekki sú eina úr leikarahóp Gossip Girl sem hefur sinnt tónlistinni því Leighton Meester hefur einnig gefið út smáskífur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×