Lífið

Hugh Grant er ennþá besti vinurinn

Hugh og Elizabeth á góðri stund í Cannes fyrir tólf árum. Mynd/AFP
Hugh og Elizabeth á góðri stund í Cannes fyrir tólf árum. Mynd/AFP

Fyrirsætan Elizabeth Hurley sagði í nýlegu viðtali að unnusti hennar, fyrrverandi, leikarinn Hugh Grant, væri hennar besti vinur.

„Ég á nokkra góða vini. Eiginmaður minn er minn besti vinur dags daglega, systir mín er minn traustasti vinur en Hugh er besti vinur minn. Hann skilur ýmislegt sem enginn annar skilur og hann verður alltaf í fyrsta sæti. Við höfum verið bestu vinir í aldarfjórðung og það hlýtur að vera einhvers virði," sagði fyrirsætan, en jafnframt því að vera góður fjölskylduvinur er Grant guðfaðir sonar hennar.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×