Sigurður Ragnar: Ég hef alltaf haft fulla trú á Kristínu Ýr Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2010 15:22 Kristín Ýr Bjarnadóttir.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna, valdi Valskonuna Kristínu Ýr Bjarnadóttur í landsliðshópinn sinn í dag, daginn eftir að hún sagði sjálf að landsliðsþjálfarinn hefði ekki trú á henni. „Kristín Ýr hefur verið í landsliðinu hjá okkur áður og á að baki tvo landsleiki. Hún kemur inn aftur núna. Hún er markahæsti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni í sumar og er frábær skallamaður," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson um Kristínu á blaðamannafundi í dag. Sigurður Ragnar ætlar bara að taka hennar gagnrýni frá því eftir bikarúrslitaleikinn í gær. „Ég virði hennar skoðanir í því en ég held að ég hafi sýnt með valinu á henni núna að ég hafi fulla trú á henni og hef alltaf haft það. Ég þarf kannski bara að ræða við hana," sagði Sigurður Ragnar sem hrósaði framherjanum öfluga úr Íslands- og bikarmeistaraliði Vals. „Ég hef alltaf sagt það að hún sé besti skallamaður landsins og það er hennar helsti kostur. Hún er frábær í loftinu og aðrir þættir í hennar leik hafa smá saman verið að batna," sagði Sigurður. „Hennar hæfileikar hafa ekki hentað okkar liði taktískt. Við spilum yfirleit góða og þétta vörn og sækjum hratt. Við erum ekki lið sem "dóminerar" leikina og er að setja mikið af háum boltum inn í teig þar sem hennar hæfileikar eru. Ég held að hún hafi samt töluvert að gefa okkur," sagði Sigurður Ragnar að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings