Hertar reglur um bankana 22. maí 2010 01:00 Obama steig út í Rósagarðinn við Hvíta húsið í Washington til að skýra fjölmiðlum frá nýju reglunum.fréttablaðið/AP
Öldungadeild Bandaríkjanna samþykkti á fimmtudag nýjar og strangar reglur um fjármálastarfsemi, sem eiga að koma í veg fyrir nýtt hrun. Afgreiðsla frumvarpsins þykir mikill sigur fyrir Barack Obama forseta, stuttu eftir annan mikilvægan sigur þegar þingið samþykkti nýja heilbrigðislöggjöf sem tryggir flestum Bandaríkjamönnum heilbrigðisþjónustu. Með frumvarpinu, sem samþykkt var með 59 atkvæðum gegn 39, verða gerðar strangari kröfur til fjármálastofnana sem veita húsnæðislán, stunda almenn verðbréfaviðskipti eða flókin afleiðuviðskipti sem grófu undan fjármálakerfinu svo það hrundi með víðtækum afleiðingum fyrir tveimur árum. „Markmið okkar er ekki að refsa bönkunum heldur að vernda efnahagslífið og almenning fyrir ólgu af því tagi sem við höfum séð undanfarin ár," sagði Obama þegar ljóst var að frumvarpið yrði samþykkt í deildinni. Hann sagði fjármálafyrirtæki hafa unnið að því hörðum höndum að koma í veg fyrir að frumvarpið verði að lögum, og notað til þess „heilu hjarðirnar af hagsmunavörðum og varið milljónum dala í auglýsingar". Fulltrúadeild þingsins samþykkti fyrir stuttu sína útgáfu frumvarpsins, sem er að nokkru frábrugðin frumvarpi öldungadeildarinnar. Nú hefst því vinna við að samræma frumvörpin, en búist er við því að lögin verði tilbúin til undirritunar forseta fyrir þjóðhátíðardaginn 4. júlí. gudsteinn@frettabladid.is
Erlent Fréttir Mest lesið Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira