Lífið

Bieber býr yfir ýmsum hæfileikum

Justin Bieber leysti töfratening Rubiks á einni og hálfri mínútu í spænskum spjallþætti á dögunum.
Justin Bieber leysti töfratening Rubiks á einni og hálfri mínútu í spænskum spjallþætti á dögunum.

Söngvarinn Justin Bieber sannaði fyrir heiminum að hann er meira en bara sæt táningsstjarna, þegar hann mætti í spænskan spjallþátt á dögunum.

Bieber hafði í för með sér töfratening Rubiks og sýndi æstum áhorfendum hvernig hann leysti úr þrautinni, en það tók hann ekki nema eina og hálfa mínútu. Þegar Bieber var búinn, stóð hann upp og afhenti trylltum aðdáendum í salnum kubbinn.

Poppstjarnan hefur víst verið að þjálfa hæfileikann í einhvern tíma og ljóst að það hefur skilað árangri, allavega í þetta skipti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×