Lífið

Submarino verðlaunuð

verðlaunahafar Vinterberg, Lindholm og Kaufmann við verðlaunaafhendinguna.
verðlaunahafar Vinterberg, Lindholm og Kaufmann við verðlaunaafhendinguna.

Danski leikstjórinn Thomas Vinterberg, handritshöfundurinn Tobias Lindholm og framleiðandinn Morten Kaufmann hljóta hin eftirsóttu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir myndina Submarino.

„Ég er afar ánægður og stoltur yfir því að hljóta kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs. Þetta er mikill heiður,“ segir Vinterberg.

Submarino var sýnd á Riff-hátíðinni fyrir skömmu en það var Valdís Óskarsdóttir sem sá um klippingu myndarinnar.

Þær fimm myndir sem voru tilnefndar til kvikmyndaverðlaunanna verða sýndar á vegum Græna ljóssins 29. október til 4. nóvember í Bíó Paradís.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×