Lífið

Farrell vatnshræddur og fer ekki í bað

Farrell hefur viðurkennt að vera lélegur sundmaður.
Farrell hefur viðurkennt að vera lélegur sundmaður.

Leikarinn Colin Farrell hefur viðurkennt að vera bæði lélegur sundmaður og vatnshræddur.

„Ég fer ekki einu sinni í bað. Ég kann að synda en mér líður ekki vel í vatni. Öll mín fjölskylda er góð í sundi en ég hef aldrei getað synt," sagði Farrell.

Nýjasta mynd hans nefnist Ondine og var sýnd á Græna ljósinu. Hún fjallar um sjómann sem kemst í kynni við hafmeyju. Farrell segir að það hafi verið gaman að leika aðalpersónuna Syracuse.

„Persónan var bæði einlæg og laus við tilgerð og það fannst mér heillandi við hana."

Stiklu fyrir Ondine má sjá hér.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×