Lífið

Flowers á heimleið

Rólegt Sólóplata Brandons Flowers hefur ekki beint slegið í gegn. Nordicphotos/AFP
Rólegt Sólóplata Brandons Flowers hefur ekki beint slegið í gegn. Nordicphotos/AFP

Söngvarinn Brandon Flowers úr The Killers er farinn að sjá fyrir endann á sólótilburðum sínum, í bili að minnsta kosti. Fyrsta sólóplata Flowers, Flamingo, kom út 10. september síðastliðinn og hann er nú á tónleikaferðalagi í Bretlandi. Eftir það taka við nokkrir tónleikar í Bandaríkjunum en svo ætlar söngvarinn að eyða tíma með eiginkonu sinni. Þau eiga von á þriðja barni sínu innan tíðar.

„Þetta er að róast. Þetta verður ekki eins stór kynningarherferð og hjá The Killers," segir söngvarinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×