Verslunarkeðjur Kaupþings á blússandi siglingu 9. nóvember 2010 10:50
Mike Shearwood forstjóri Aurora Fashions segir að uppbygging félagsins muni ganga hraðar fyrir sig en áður var áætlað og að nú einbeiti stjórnin sér að frekari vexti. Aurora Fashions var stofnað af skilanefnd Kaupþings í mars í fyrra en verslunarkeðjurnar Warehouse, Oasis, Coast og Karen Millen tilheyra Aurora Fashions. Í frétt um málið í Daily Mail segir að á sex mánaða tímabili sem lauk í júlí s.l. hafi hagnaður verslunarkeðjanna aukist um 36% og nam hann 3,5 milljörðum kr. fyrir skatta og afskriftir. Aurora Fashion hefur nú ráðið sérstaka forstjóra fyrir hverja af framangreindum verslunarkeðjum. Fram kemur að salan í verslunum í eigu Aurora Fashion hafi aukist um 5% m.v. sama tímabil í fyrra en netverslun þeirra hafa aukist um 34%. Þá hafi félagið bætt 37 verslunum við rekstur sinn. Aurora Fashion rekur nú 1.508 verslanir í 46 löndum, þar af eru 307 Warehouse, 250 Oasis og 205 Coast verslanir á Bretlandseyjum. Þessar verslanir voru áður í eigu Baugs í gegnum Mosaic en Kaupþing tók þær yfir upp í 400 milljón punda skuld Mosaic við bankann. Um leið var nafninu breytt í Aurora Fashions.
Mest lesið Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira