Lífið

Góðir gestir hjá Conan

conan o´Brien Conan O´Brien stjórnar nýjum spjallþætti á sjónvarpsstöðinni TBS.
conan o´Brien Conan O´Brien stjórnar nýjum spjallþætti á sjónvarpsstöðinni TBS.

Gamanleikarinn Seth Rogen og rokkarinn Jack White verða gestir í fyrsta spjallþætti Conans O"Brien á bandarísku sjónvarpsstöðinni TBS sem fer í loftið 8. nóvember.

Einnig er mögulegt að sá sem verður efstur á blaði í skoðanakönnun um hver eigi að vera fyrsti gestur þáttarins láti einnig sjá sig.

Leikarinn Jack Nicholson er sem stendur í efsta sætinu.

Á meðal fleiri gesta í næstu þáttum Conans verða Tom Hanks, Soundgarden og Michael Cera. Conan O"Brien stjórnaði áður kvöldþætti NBC þar sem hann tók við af Jay Leno en var látinn taka pokann sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×