Lífið

Fimmtán þúsund tryggðu sér miða á Frostrósirnar

á ferð og flugi Frostrósafólkið verður á ferð og flugi í desember. Miðasala á tónleikana hefur gengið vonum framar. fréttablaðið/stefán
á ferð og flugi Frostrósafólkið verður á ferð og flugi í desember. Miðasala á tónleikana hefur gengið vonum framar. fréttablaðið/stefán

Miðar á tónleika Frostrósa í desember seldust eins og heitar lummur í gær. Salan er töluvert betri en á sama tíma í fyrra.

Íslendingar hefja jólaundirbúninginn snemma því ríflega fimmtán þúsund miðar höfðu selst á níundu jólatónleikaröð Frostrósa skömmu eftir hádegi í gær, aðeins þremur klukkustundum eftir að almenn miðasala hófst. Forsala á tónleikana hófst daginn áður. Þetta er mun betri árangur en í fyrra þegar tíu þúsund miðar seldust á svipuðum tíma.

„Við erum í skýjunum. Þetta er sirka 50% meira en á sama tíma og í fyrra,“ segir skipuleggjandinn Samúel Kristjánsson.

„Þetta er greinilega nokkuð sem fólki finnst vera orðið alveg ómissandi í jólaundirbúningnum.“

Jólatónleikar Björgvins Halldórssonar verða haldnir í desember eins og Frostrósatónleikarnir og miðar á þá hafa einnig selst eins og heitar lummur. Samúel er ánægður með þennan mikla áhuga sem Íslendingar hafa á jólatónleikum. „Það er ánægjulegt ef öllum gengur vel. Við erum að fara fram úr okkar væntingum og erum enn langvinsælasti tónlistarviðburður landsins.“

Uppselt er á þrenna Frostrósatónleika í Laugardalshöll og er miðasala hafin á aukatónleika þar. Einnig er uppselt á Frostrósir víða um land en alls seldist upp á tólf tónleikastöðum í gær. Tvennir aukatónleikar eru sömuleiðis fyrirhugaðir á Akureyri.

Miðaverð á Frostrósir er 4.590 úti á landi og hefur hækkað um 500 krónur frá því í fyrra. Í Reykjavík hafa miðarnir hækkað um þúsund krónur og kosta á bilinu 4.990 til 11.990. Ljóst er af fjölda seldra miða að veltan hleypur á tugum milljónum króna.

Margir af fremstu söngv­urum og hljóðfæraleikurum landsins koma fram á tónleikunum, sem verða haldnir á tímabilinu 1.-17. desember. Í Laugardalshöll verða vel yfir tvö hundruð manns, einsöngvarar, kórar og hljóðfæraleikarar í einu á sviðinu. Flytjendur í Reykjavík og á Akureyri er þau Eivør, Hera Björk, Margrét Eir, Ragnheiður Gröndal og Regína Ósk, Friðrik Ómar, Garðar Thor Cortes, Jóhann Friðgeir og Stefán Hilmarsson. Á tónleikaferðinni um landið verða allir með nema Margrét Eir, Eivør og Stefán.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×