Lífið

Fjórða barn Matt Damons á leiðinni

Matt Damon á von á sínu fjórða barni með eiginkonu sinni Lusiönu Keiser.
Matt Damon á von á sínu fjórða barni með eiginkonu sinni Lusiönu Keiser.

Leikarinn Matt Damon og eiginkona hans, Luciana, eiga von á sínu fjórða barni innan skamms en fyrir eiga hjónin dæturnar Alexiu, Isabellu og Giu.

„Föðurhlutverkið heldur manni niðri á jörðinni. Nú fer maður snemma í háttinn og snemma á fætur. Eiginkona mín er vitur og hugulsöm kona. Ég vona að dætur mínar erfi persónueinkenni hennar," sagði Damon í viðtali við US Weekly.

„Ég bý einn með fjórum konum og hef því ekkert vald á heimilinu," sagði leikarinn viðkunnalegi en honum gæti bæst liðsauki þegar krílið kemur í heiminn.

Vinur og samstarfsfélagi Damons, leikarinn Ben Affleck, er einnig í minnihluta á heimili sínu, því hann á tvær dætur með eiginkonu sinni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×