Allt að 600 tonn af kjöti til Japan Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. október 2010 21:09 Gert að langreyð í Hvalfirði. Mynd/ afp.
Hvalur hf. hefur flutt á milli 500 - 600 tonn af langreyðakjöti til Japan það sem af er þessu ári. Þetta fullyrðir japanska fréttastofan Kyodo News. Þar er fullyrt að árlega sé markaðssett um 4000 tonn af hrefnukjöti á ári í Japan. Langreyðakjötið frá Íslandi komi til með að hafa áhrif á verðlagið á hvalkjöti á markaðnum. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, segir í samtali við Kyodo News að það sé ekki ætlunin að reyna að ryðja hrefnukjötinu út af markaðnum í Japan. Hann sé sannfærður um að innflutningurinn á langreyðakjötinu sé til hagsbóta fyrir alla. Kyodo News segir að Hvalur hafi veitt 148 langreyðar á þessu ári með það að markmiði að markaðssetja kjötið í Japan. Japanir sjálfir hafi hins vegar einungis veitt tvær langreyðar á síðustu tveimur árum. Kyodo News segir að samkvæmt gögnum frá fjármálaráðuneytinu í Japan hafi 164 tonn af langreyðarkjötinu frá Íslandi verið tollafgreidd í Japan í lok september. Afgangurinn af kjötinu er annað hvort í tollafgreiðslumeðferð eða í vöruhúsum.
Mest lesið Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira