Lífið

Syngja lög Waits

Tom waits
Lög Tom Waits verða sungin í Tjarnarbíói á tvennum tónleikum á laugardaginn.
Tom waits Lög Tom Waits verða sungin í Tjarnarbíói á tvennum tónleikum á laugardaginn.

Hljómsveitin The Bad Livers and Broken Hearts Band flytur tónlist eftir Tom Waits i Tjarnarbíói á tvennum tónleikum á laugardagskvöld. Uppselt er á þá fyrri sem hefjast kl. 20 en hinir síðari verða kl. 22.30.

Í sveitinni eru þeir Sigtryggur Baldursson, Pétur Þór Benediktsson, Frank Hall, Leifur Jónsson, Páll Ívan Pálsson og Kjartan Guðnason. Einnig koma við sögu ýmsir söngvarar sem taka lagið, þar á meðal Ragnhildur Gísladóttir, Krummi, Baddi, Björn Hlynur, Didda, Jónas Sig, Högni úr Hjaltalín og Ólafur Darri Ólafsson. Flutt verða lög af ferli herra Waits í ýmsum útsetningum.

Sami grunnhópur með öðrum gestum hélt svipaða tónleika í Íslensku óperunni fyrir þremur árum við góðar undirtektir og hafa komið fram margar áskoranir um að endurtaka leikinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×