Lífið

Longoria í bílslysi

eva longoria Leikkonan lenti í minni háttar bílslysi í Hollywood.
eva longoria Leikkonan lenti í minni háttar bílslysi í Hollywood.

Leikkonan Eva Longoria Parker úr þáttunum Desperate Housewives lenti í minni háttar bílslysi í Hollywood fyrir skömmu.

Longoria var að aka eftir Hollywood Boulevard-götunni þegar annar bíll ók á hana er hann ætlaði að beygja inn á bílastæði. Leikkonan kvartaði yfir minni háttar meiðslum þegar lögreglan kom á svæðið en fór ekki á sjúkrahús.

Hinn ökumaðurinn meiddist ekki. Talið er að Longoria hafi verið á leið frá veitingastað sínum, Beso, þegar slysið átti sér stað.

Næsta verkefni hennar er að kynna evrópsku MTV-tónlistarverðlaunin sem verða haldin í Madríd 7. nóvember. Þar eru söngkonurnar Katy Perry og Lady Gaga tilnefndar til fimm verðlauna hvor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×