Lífið

Græjuklúður í frumsýningarpartý Steinda

Steindi Jr. bregður sér í allra kvikinda líki í þáttunum Steindinn okkar. Þeir eru sýndir á Stöð 2 á föstudagskvöldum.
Steindi Jr. bregður sér í allra kvikinda líki í þáttunum Steindinn okkar. Þeir eru sýndir á Stöð 2 á föstudagskvöldum.

Grínistinn Steindi Jr. fagnaði frumsýningu nýs sjónvarpsþáttar síns á Stöð 2 með veislu í Gyllta sal Hótels Borgar á föstudagskvöld. Ætlunin var að sýna þáttinn á breiðtjaldi en þegar til kom virkaði afruglarinn á staðnum ekki.

Þá brá Ágúst Bent, einn framleiðenda þáttanna, á það ráð að skjótast eftir eintaki á DVD. Þegar til kom virkaði DVD-spilarinn á staðnum ekki. Afruglarinn var svo enn bilaður þegar átti að horfa á Steindann okkar á Stöð 2 plús. Að endingu var hægt að sýna gestum þáttinn góða í gegnum tölvu.

Gestir í partíi Steinda létu þetta ekki mikið á sig fá enda var vel veitt svo biðin var þeim ekki beint óbærileg. Meðal gesta voru Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi, rapparinn Diddi Fel, Erpur Eyvindarson, Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona, Vala Grand, Steinþór Helgi, umboðsmaður Hjaltalín, Frosti Logason útvarpsmaður og Bragi Valdimar í Baggalúti.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×