Lífið

Jóhanna Guðrún með kórónu Svíaprinsessu

Jóhanna Guðrún ásamt Eric Saade sem er einn af vinsælustu ungu söngvurunum í Svíþjóð.
Jóhanna Guðrún ásamt Eric Saade sem er einn af vinsælustu ungu söngvurunum í Svíþjóð.

Söngkonan Jóhanna Guðrún er stödd í Svíþjóð, þar sem hún tekur þátt í stórri jólasýningu ásamt mörgum af þekktustu söngvurum Svíþjóðar.

„Það er þvílík mæting á þetta. Það eru tvær sýningar í gangi sem berjast um vinsældirnar og þessi er greinilega að vinna þá keppni," segir María Björk Sverrisdóttir, samstarfskona Jóhönnu Guðrúnar.

Þema sýningarinnar er sænska konungsfjölskyldan og er um nokkurs konar söngleik að ræða. Skemmtunin, sem felur í sér þriggja rétta kvöldverð, er haldin fjórum sinnum í stórum höllum í Svíþjóð og munu um sextán þúsund manns hafa barið Jóhönnu og félaga augum þegar yfir lýkur á föstudagskvöld.

Á meðal þeirra sem stíga á svið með henni eru Andreas Johnson, Jessica Andersson, Brolle og Eric Saade, sem er ungur og upprennandi söngvari og tekur þátt í sænsku Eurovision-undankeppninni í ár. Sýningin hefur fengið góðar viðtökur gagnrýnenda, þar á meðal fimm stjörnur á sænsku tónlistarsíðunni Poplight.zitiz.se.

Jóhanna er sjálf í hlutverki Svíaprinsessu og ber kórónu á höfði. Á meðal laga sem hún syngur eru Respect sem Aretha Franklin gerði vinsælt og að sjálfsögðu Eurovision-slagarinn Is it True?

María Björk hætti sem umboðsmaður Jóhönnu Guðrúnar í sumar eftir tíu ára samstarf og við starfinu tók norski umbinn Eyvind Brydøy. María starfar þó enn fyrir Jóhönnu og stóð meðal annars á bak við þátttöku hennar í Svíþjóðar-gigginu.

„Við erum að vinna saman og munum gera það í framtíðinni. Ég ætla að leggja mitt af mörkum til að ferill hennar haldi áfram en við ætlum að sjá hvernig hlutirnir þróast," segir María.- fb










Fleiri fréttir

Sjá meira


×