Lífið

Ungfrú Hvíta-Rússland eins og Ungfrú Reykjavík

Vængir og undirföt eru þekkt þema frá Victoria's Secret.
Vængir og undirföt eru þekkt þema frá Victoria's Secret.
Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Hvíta-Rússland fór fram í Minsk fyrir helgi. Þar var mikið um dýrðir enda nýtur keppnin mikillar hylli í heimalandinu.

Keppnin átti það sameiginlegt með Ungfrú Reykjavík, sem var haldin á Broadway í febrúar, að stúlkurnar komu fram með risavængi. Þetta þema, sem er þekkt frá undirfatasýningum Victoria's Secret, virðist því vera að festa rætur í fegurðarkeppnibransanum.

Þá er bara spurning hvort stelpurnar sem keppa í Ungfrú Ísland seinna í mánuðinum verði einnig með vængi.





Ungfrú Reyjavík, Íris Björk Jóhannesdóttir, skartaði þessum hvítu vængjum á keppninni í febrúar.
Úr keppninni í Hvíta-Rússlandi.
Hvít-Rússarnir buðu líka upp á fiðrildavængi.
Úr keppninni í Hvíta-Rússlandi.
Annar keppandi í Ungfrú Reykjavík í febrúar.
Ungfrú Hvíta-Rússland krýnd.
Tyra Banks með englavængi á sýningu Victoria's Secret fyrir tíu árum.
Úr keppninni í Hvíta-Rússlandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×