Ribery hefur ekki áhyggjur af ferlinum vegna vændismálsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júlí 2010 12:30 Franck Ribery og kona hans Wahiba. Mynd/AFP
Frakkinn Franck Ribery hefur ekki áhyggjur af framtíð sinni í fótboltanum þrátt fyrir að hafa verið ákærður fyrir samræði við vændiskonu sem var undir lögaldri. Ribery segist ekki hafa gert neitt rangt. „Ég er ekki hræddur um framtíð mína eða hef áhyggjur af ferli mínum hvort sem það er hjá Bayern Munchen eða með franska landsliðinu," sagði Ribery í viðtali við Bild. „Ég vissi ekki af því að ég væri að brjóta lög," sagði Ribery. Hinn 27 ára gamli leikmaður var yfirheyrður í sjö tíma á þriðjudaginn og hann hefur viðurkennt að hafa stundað kynlíf með vændiskonunni Zahia Dehar en jafnframt að hann hafi ekki vitað að hún væri ekki orðin 18 ára. Franck Ribery borgaði flug og hótel fyrir Zahia Dehar þegar hún kom til hans á 26 ára afmælisdag hans í apríl 2009. Það er ólöglegt í bæði Frakklandi og Þýskalandi að vera með vændiskonu sem er undir 18 ára og refsingin er fimm ára fangelsi í Þýskalandi. „Ég verð að komast í gegnum þennan erfiða tíma. Það verður ekki auðvelt en ég verð bara að gera það. Ég er leikmaður sem er áberandi í þjóðfélaginu og það er ekki alltaf auðvelt að lifa við með þeirri pressu. Pressan er gríðarleg," sagði Ribery. „Ég vona að allt þetta tal um einkalíf mitt taki fljótt enda. Það mikilvægasta í mínu lífi er fótboltinn og vil fara að njóta fótboltans að nýju og fá að einbeita mér aftur af honum sem fyrst," sagði Franck Ribery.
Þýski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Fótbolti Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf goðsögninni búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Sjá meira