Fótbolti

Þórsarar á topp 1. deildar karla

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Þróttarar fagna marki í sumar.
Þróttarar fagna marki í sumar. Heimasíða Þórs, www.thorsport.is.
1550 manns sáu Þór komast á topp 1. deildar karla í knattspyrnu eftir öruggan sigur í grannaslagnum við KA á Akureyri í kvöld.

Þórsarar skoruðu strax á þriðju mínútu, þar var að verki Atli Sigurjónsson sem skoraði af stuttu færi.

Þorsteinn Ingason bætti við öðru marki á 24. mínútu og staðan í hálfleik var 2-0.

Sigurður Marínó Kristjánsson skoraði síðasta mark leiksins af löngu færi eftir að Sandor Matus hreinsaði frá, en beint á Sigurð sem sá markið opið. Lokatölur 3-0.

Þór er með 40 stig, einu meira en Víkingur og Leiknir, sem spila á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×