Sögulegt tímabil hjá Rosenborg Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. nóvember 2010 19:39 Úr leik með Rosenborg. Nordic Photos / AFP
Rosenberg fór í gegnum tímabilið í norsku úrvalsdeildinni í sumar án þess að tapa leik. Það er í fyrsta sinn í sögunni sem það gerist en tímabilinu lauk í dag. Rosenborg gerði 2-2 jafntefli við Álasund í lokaumferðinni en liðið var fyrir löngu búið að tryggja sér meistaratitilinn. Það var því aðeins spurning um að fara taplaust í gegnum tímabilið og því tókst liðinu að gera. Álasund komst reyndar yfir í leiknum en Rosenborg skoraði tvívegis áður en að Álasund jafnaði metin með marki í blálok leiksins. Rosenborg hlaut 68 stig í ár, átta meira en Vålerenga sem varð í öðru sæti. Liðið vann nítján leiki og gerði ellefu jafntefli. Birkir Bjarnason skoraði tvö mörk fyrir Viking sem vann Kongsvinger í lokaumferðinni í dag, 3-1. Mörkin skoraði hann með átta mínútna millibili í upphafi síðari hálfleiks. Birkir spilaði allan leikinn fyrir Viking, rétt eins og Indriði Sigurðsson. Hönefoss steinlá fyrir Sandefjord á útivelli, 6-1. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn með Hönefoss. Bjarni Ólafur Eiríksson og Pálmi Rafn Pálmason léku allan leikinn með Stabæk sem tapaði, 1-0, fyrir Molde á útivelli. Veigar Páll Gunnarsson var ekki í hópnum hjá Stabæk. Árni Gautur Arason var á bekknum í sínum síðasta leik hjá Odd Grenland sem gerði 1-1 jafntefli við Brann. Birkir Már Sævarsson var ekki í hópnum hjá Brann og Gylfi Einarsson var ónotaður varamaður í sínu síðasta leik hjá félaginu. Það var mikill markaleikur er Strömsgodset vann 5-4 sigur á Lilleström. Björn Bergmann Sigurðarson lék allan leikinn fyrir Lilleström, sem og Stefán Logi Magnússon markvörður.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Fleiri fréttir Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Sjá meira