Lífið

Halle Berry hætt með fyrirsætunni

„Eitt fallegasta par Hollywood er skilið,“ segja blöðin vestanhafs.
„Eitt fallegasta par Hollywood er skilið,“ segja blöðin vestanhafs.

Leikkonan Halle Berry er hætt með kærasta sínum og barnsföður, fyrirsætunni Gabriel Aubrey. Þau voru saman í fimm ár og eiga saman tveggja ára dóttur, Nahla Ariela Aubry.

Gabriel var sá sem endaði sambandið og bar fyrir sig aldursmun. Hann er 34 ára en Halle 43.

Í fréttum um sambandsslitin er þó almennt fjallað um Gabriel Aubrey sem nokkuð sanngjarnan náunga. Hann reyni til að mynda ekki að næla sér í sjóði Halle Berry og eru þau samstíga í viðræðum um sameiginlega forsjá dóttur þeirra.

Halle Berry var áður gift hafnarboltastjörnunni David Justice og söngvaranum Eric Benet. Hún hefur margoft sagt opinberlega að það komi ekki til greina að giftast aftur.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×