Lífið

Mayer og Kardashian?

nýtt Par? Kim Kardashian og John Mayer eiga að hafa hist í vikunni.
nýtt Par? Kim Kardashian og John Mayer eiga að hafa hist í vikunni.

Hjartaknúsarinn John Mayer, sem hefur verið orðaður við glæsipíur á borð við Jennifer Aniston og Jessicu Simpson, hefur augastað á hinni stórglæsilegu Kim Kardashian.

Samkvæmt dagblaðinu New York Post hittust þau ásamt fleiri vinum á bar í Stóra eplinu í vikunni. „Hugmyndin var að sjá hvort þau næðu saman," er haft eftir heimildarmanni blaðsins. Kim ku vera í leit að nýrri bráð en hvorugt þeirra hefur tjáð sig um þetta stórmál. Það er því óvíst hvernig þau náðu saman og stóra spurningin er: Hittast þau aftur? Við spyrjum að leikslokum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×