Íslenski boltinn

Kjartan orðinn markahæsti leikmaður KR í Evrópukeppnum

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Kjartan Henry Finnbogason er markahæsti KR-ingurinn í Evrópukeppnum ásamt fríðum hópi manna, þeim Guðmundi Benediktssyni, Mihajlo Bibercic og Ríkharði Daðasyni. Þetta kemur fram á heimasíðu KR en þeir hafa allir skorað fjögur mörk.

Þar segir einnig að Kjartan sé sjötti KR-ingurinn sem skorar tvö mörk í Evrópuleik en hann skoraði bæði mörk liðsins gegn Karpaty í dag.

Ellert B. Schram skoraði tvisvar gegn Nantes árið 1966, Baldvin Baldvinsson gegn Feyenoord árið 1969, Mihajlo Bibercic gegn Everton 1995, Ríkharður Daðason gegn Dinamo Búkarest árið 1997 og Andri Sigþórsson gegn Birkirkara árið 2000.

Baldvin og Ríkharður skoruðu sín mörk í leikjum á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×