Verðhækkanir á byggi valda hækkun bjórverðs 12. ágúst 2010 11:15
Heimsmarkaðsverð á byggi hefur meir en tvöfaldast á síðustu mánuðum og eru þær hækkanir í samræmi við hækkanir á hveiti og öðrum kornvörum. Sökum þessa má reikna með að verð á bjór muni hækka töluvert á næsta ári.Í umfjöllun um málið í Guardian segir að heimsmarkaðsverð á byggi hafi hækkað úr 85 pundum á tonnið og í 175 pund frá því snemma í sumar. Bruggverksmiðjur kaupa hinsvegar sitt bygg 12 til 18 mánuði fram í tímann þannig að ekki er reiknað með að áhrifin af þessum hækkunum muni gæta í bjórverðinu fyrr en á sama tíma að ári.Áhrifa af þessum hækkunum er farið að gæta hjá hluthöfum stærstu bruggverksmiðja heimsins. Þannig lækkuðu hlutir í Carlsberg um 6% í síðustu viku og hlutir í Budweiser og Stella Artois lækkuðu um 5% á sama tíma. Hlutir í Heineken lækkuðu svo um 5% í þessari viku.Kráareigandi í Dorset reiknar með að hálfur líter af bjór hjá honum muni kosta 4 pund að ári en hann kostar 3 pund í dag. Þarna spilar að vísu inn í boðað hækkanir á virðisaukaskatti upp á 2.5% og áfengisgjöldum upp á sömu prósentu. Að teknu tilliti til þess má spá fyrir um að stór bjór á Íslandi muni kosta nokkuð yfir 1.000 krónur næsta sumar.
Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira