Íslenski boltinn

Blikinn hjá Fjarðabyggð skoraði gegn HK

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Úr leik Gróttu og ÍR fyrr í sumar.
Úr leik Gróttu og ÍR fyrr í sumar. Fréttablaðið/Valli
Aron Már Smárason heldur áfram að skora fyrir Fjarðabyggð í 1. deild karla. Hann kom liðinu á bragðið í Kópavoginum gegn HK í 2-0 sigri en hann er einmitt í láni frá Blikum og leiddist því eflaust ekkert að skora. Hann hefur nú skorað sjö mörk í sumar en markið í dag kom úr víti. Hilmar Freyr Bjartþórsson skoraði seinna mark Austfirðinga. Þá vann Þór góðan 2-0 sigur á Gróttu og er þar með komið upp í þriðja sæti deildarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×