Lífið

Kutcher í klandri

Neitar öllu Ashton Kutcher neitar því að hafa eytt nóttinni með Brittney Jones.
Neitar öllu Ashton Kutcher neitar því að hafa eytt nóttinni með Brittney Jones.

Ashton Kutcher er ekkert í sérstaklega góðum málum þessa dagana, en meint hjákona hans hefur nú sett peysu í sölu á eBay sem hún segir að sé af leikaranum.

Sögusagnir þess efnis að Kutcher hafi átt einnar nætur gaman með hinni 21 árs gömlu Brittney Jones komu upp í september. Hún hefur nú sett peysuna á eBay en uppboðsverðið hefst í 500 dölum, sem gera tæpar 59.000 krónur. Hún setur einnig inn skilaboðin:

„Ég fékk þessa peysu að gjöf eftir að hafa eytt nótt með Ashton. Hún tengist mér ekki lengur á neinn hátt en ég vona að einhver annar geti notið hennar."

Leikarinn þvertekur fyrir að hafa nokkurn tímann átt vingott við Jones, en eins og margir vita er Kutcher kvæntur leikkonunni Demi Moore.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×