Lífið

Rollingar góðir vinir

góðir vinir Richards og Jagger eru enn þá góðir vinir.
góðir vinir Richards og Jagger eru enn þá góðir vinir.

Þó að Keith Richards úr Rolling Stones segi söngvarann Mick Jagger „óþolandi“ í nýrri sjálfsævisögu sinni, segir gítarleikarinn þá enn vera góða vini.

Gítarleikarinn hefur viðurkennt að Jagger sé pirraður yfir sumu sem kemur fram í sögunni en það komi samt ekki að sök.

„Hann er frekar ósáttur við hitt og þetta,“ sagði Richards. „Ég og Mick erum samt mjög góðir vinir og við viljum enn starfa saman. Getið þið ímyndað ykkur að allt gangi alltaf eins og í sögu? Ekkert myndi gerast. Það yrði enginn blús.“

Ævisagan er væntanleg í búðir í næstu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×