Íslenski boltinn

Drillo: Þurfum að ná fram hefndnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Egil Drillo Olsen á landsliðsæfingu á Fylkisvelli.
Egil Drillo Olsen á landsliðsæfingu á Fylkisvelli. Fréttablaðið/Pjetur
Undankeppni EM 2012 hefst á morgun. Ísland mætir Noregi á Laugardalsvelli í fyrsta leik en þessi tvö lið mættust einmitt í síðasta leik Íslands í undankeppni HM 2010. Þá gerðu liðin 1-1 jafntefli og Noregur tapaði dýrmætum stigum í baráttunni um að komast í umspil í undankeppninni.

„Við þurfum að ná fram hefndum fyrir síðasta leik," sagði Egil „Drillo" Olsen, landsliðsþjálfari Noregs, í samtali við Fréttablaðið í gær. „Þetta var í raun okkar síðasti alvöru keppnisleikur. Eftir það hefur okkur gengið nokkuð vel og ég hef verið ánægður með þróun liðsins. Við höfum náð góðum úrslitum og aðeins tapað einum leik. Það var fyrir Úkraínu, 1-0, þó svo að við hefðum fengið tíu góð færi í leiknum.

Hann á von á erfiðum leik gegn Íslandi, jafnvel þótt nokkrir sterkir leikmenn séu fjarverandi hjá liðinu nú.

„Við vitum að þetta verður erfiður leikur sem mun taka mikið á. Það eru íslenskir leikmenn í mörgum sterkum deildum og ég er viss um að leikurinn verður bæði jafn og spennandi," segir Olsen. „Ísland á þar að auki marga góða unga leikmenn og ég á von á að þeir muni láta mikið að sér kveða, sérstaklega þar sem U-21 landsliðið vann 4-1 sigur á Þýskalandi sem eru hreint ótrúleg úrslit."

Noregur vann Frakkland í síðasta æfingaleik fyrir undankeppnina en Ísland gerði 1-1 jafntefli við Liechtenstein á sama tíma.

„Ég sá þann leik og nei, hann var ekki mjög góður. En ég fylltist ekki sjálfstrausti því ég veit að Ísland getur miklu betur."

Olsen segist vera sæmilega bjartsýnn fyrir komandi undankeppni en riðillinn sé vissulega erfiður. Auk Íslands og Noregs eru þar Portúgal, Danmörk og Kýpur.

„Ég hef áður sagt að við eigum helmningslíkur á því að komast áfram. En það verða engir auðveldir leikir og liðin í 4. og 5. styrkleikaflokki - Kýpur og Ísland - munu líka hala inn stigum."

Hann segir að það verði enginn dauðadómur fyrir Noreg ef liðið nær ekki þremur stigum á morgun. „Ég held ekki. Sviss hóf síðustu undankeppni á því að tapa fyrir Lúxemborg á heimavelli en vann svo riðilinn," benti hann á. „Þetta er erfiður riðill og ég á von á að öll lið muni fá einhver stig."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×