Viðskipti erlent

Toyota innkallar Prius

Mynd/Valgarður Gíslason

Japanski bílaframleiðandinn Toyota hyggst síðar í vikunni innkalla rúmlega 300 þúsund bifreiðar af gerðinni Prius í Bandaríkjunum og Japan vegna bilana í hemlunarbúnaði bifreiðanna. Áður hafði fyrirtækið innkallað um átta milljónir bifreiðar víðsvegar um heiminn, þar á meðal á Íslandi, vegna bilana í bensíngjöf í sjö undirtegundum.

Hlutabréf í Toyota hafa hríðfallið á hlutabréfamarkaðnum í Tokyo að undanförnu og ekki verið lægri í tæpt ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×