Lífið

West fylgir aðeins ungum fyrirsætum

Twittari Kanye West fylgir sjálfur bara Twitter-síðum hjá fyrirsætum á borð við Bar Rafaeli.
Twittari Kanye West fylgir sjálfur bara Twitter-síðum hjá fyrirsætum á borð við Bar Rafaeli.

Kanye West er virkur Twitter-notandi og um 1,3 milljónir notenda fylgja honum á síðunni. Sjálfur fylgir West aðeins fjórtán notendum og eiga þeir allir eitt sameiginlegt; allir notendurnir eru ungar fyrirsætur.

Á meðal þeirra sem West fylgir eru ofurfyrirsætan Bar Rafaeli, hin tvítuga Chanel Iman frá Bandaríkjunum og hin stórglæsilega Alessandra Ambrosio. Flestar eru fyrirsæturnar á aldrinum 20-30 ára, en sú elsta er hin 45 ára gamla Veronica Webb. Sjálfur er West 33 ára gamall, en aldur er auðvitað afstæður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×