Lífið

Britney hrædd við kærastann

Treysti vini Samkvæmt fyrrverandi eiginmanni Britney Spears býr hún við heimilisofbeldi. nordicphotos/getty
Treysti vini Samkvæmt fyrrverandi eiginmanni Britney Spears býr hún við heimilisofbeldi. nordicphotos/getty

Fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Britney Spears heldur því fram í viðtali við tímaritið Star Magazine að hún búi við heimilisofbeldi.

Jason Alexander er æskuvinur Spears og fyrrverandi eiginmaður, en þau voru aðeins gift í 55 klukkustundir eins og frægt er orðið.

Alexander og Spears hafa haldið góðu sambandi eftir að hjónaband þeirra var dæmt ógilt árið 2004 og segir Alexander að söngkonan hafi leitað til hans eftir að Jason Trawick, kærasti hennar, hafi slegið til hennar með þeim afleiðingum að hún hlaut glóðarauga.

„Britney er í ofbeldisfullu sambandi og hún sagði mér að líf sitt hefði breyst í martröð. Ég hef miklar áhyggjur af henni og held að hún sé að segja mér þessi leyndarmál í von um að ég geri eitthvað til að koma henni út úr þessum aðstæðum," segir Alexander í viðtalinu.

Samkvæmt Star Magazine er þetta ekki eina leyndarmálið sem söngkonan treysti vini sínum fyrir því hún sagðist einnig hafa orðið ólétt eftir Trawick fyrr á árinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×