Umdeild plata poppkóngs 3. desember 2010 08:30 michael jackson Nýjasta plata popparans sáluga er væntanleg um miðjan mánuðinn.nordicphotos/getty
Ný plata frá poppkónginum sáluga Michael Jackson kemur út á næstunni. Hún hefur fengið misjafna dóma og vakið miklar deilur. Nýjasta plata popparans sáluga Michaels Jackson, Michael, hefur fengið misjafnar viðtökur breskra gagnrýnenda. Platan kemur út um miðjan desember og þegar eru farnir að birtast um hana dómar. Útvarpsmaður breska ríkisútvarpsins, BBC Radio One, hafði þetta að segja um plötuna: „Það er ljóst að þetta er ekki ný plata með Michael Jackson heldur er þetta samansafn af áður óheyrðum lögum,“ sagði hann og fannst lítið til hennar koma. Gordon Smart hjá götublaðinu The Sun skrifaði: „Í heildina er platan vonbrigði og kemst ekki nálægt bestu plötum hans, Off the Wall, Thriller og Bad.“ Blaðamaður The Independent bætti við að mörg laganna fjöruðu einfaldlega út án þess að enda almennilega, rétt eins og tónlistarmaðurinn sjálfur. Á meðal gesta á plötunni eru Akon, 50 Cent, Lenny Kravitz og rokkarinn Dave Grohl sem spilar á trommur í laginu Monster. Miðað við þessa dóma virðist það ekki hafa dugað til. Aðeins eitt lag á plötunni var fullklárað af Jackson, ballaðan Much Too Soon sem var tekin upp á níunda áratugnum. Hin tókst honum ekki að ljúka við áður en hann lést fyrir átján mánuðum. Útgáfan hefur reyndar vakið miklar deilur. Margir telja að ekki hafi verið rétt að gefa út plötu með ókláruðum lögum, þar á meðal will.i.am úr hljómsveitinni The Black Eyed Peas sem taldi útgáfuna bera vott um vanvirðingu. Akon er á annarri skoðun og telur að arfleifð Jacksons sé haldið á lofti með plötunni. Fjölskylda Jacksons hefur sömuleiðis kvartað yfir laginu Breaking News sem var sett í loftið fyrir skömmu og telur að Jackson hafi í raun ekki sungið það heldur sé um einhvers konar fölsun að ræða. Útgáfurisinn Sony segist engu að síður sannfærður um að söngurinn hafi verið í höndum Jacksons, enda hafi það verið vísindalega sannað. Hvað sem öllum dómum og deilum líður er ljóst að aðdáendur Jackson eiga eftir að kaupa plötuna í bílförmum, enda er hann fyrir löngu orðin goðsögn í þeirra augum. freyr@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Sjá meira