Lífið

Öðrum kennt í Gerðubergi

Pétur Gunnarsson
Pétur Gunnarsson

Pétur Gunnarsson hefur umsjón með tveggja kvölda námskeiði um Þórberg Þórðarson í Gerðubergi mánudaginn 11. og miðvikudaginn 13. október.

Pétur er öðrum fróðari um manninn og skáldið Þórberg, en hann ritaði bækurnar Í fátæktarlandi og Í forheimskunarlandi, þar sem hann endurskapaði þroskasögu Þórbergs sem rithöfundar og einstaklings.

Í tilkynningu frá Gerðabergi segir að þótt nokkuð sé um liðið síðan Þórbergur yfirgaf sviðið, hafi hann sjaldan verið jafn nærverandi og nú, enda hafa birst um hann verk sem byggja á því ríkulega heimildasafni sem hann lét eftir sig á undanförnum árum. Ætlar Pétur að freista þess að vekja hugboð um þessa þróun og efna til stefnumóts við höfundinn og verk hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×