Mótorhjólasamtök áberandi í dönskum fyrirtækjarekstri 25. janúar 2010 09:35
Danska lögreglan og skattayfirvöld standa nú fyrir umfangsmiklum rannsóknum á fyrirtækjarekstri mótorhjólasamtaka á borð við Hells Angels og Bandidos í Danmörku. Meðlimir þessara samtaka hafa verið áberandi í dönskum fyrirtækjarekstri á síðustu árum.Samkvæmt ítarlegum frásögnum í bæði Berlingske Tidenede og Jyllands Posten eru meðlimur fyrrgreindra samtaka, yfirleitt kallaðir rockers í Danmörku, grunaðir um að nota lögmæt fyrirtæki til peningaþvættis og til að leyna tekjum sínum af ólöglegri starfsemi eins og eiturlyfjasmygli/sölu og vændi.Fyrirtækin sem rockararnir eiga og reka eru fjárfestingarfélög, fasteignafélög og flutningsfyrirtæki svo dæmi séu tekin. Þá er einnig þekkt að rockarar noti félög í skattaskjólum til að greiða sér ofurlaun og þannig geta þeir réttlætt eignir í Danmörku eins og lúxusíbúðir og bíla.Ole Madsen lögreglustjóri hjá lögreglunnar á Austur-Jótlandi segir í samtali við Berlingske Tidende að embætti sitt hafi unnið frá árinu 2002 að ná til rockara í gegnum fjármálastúss þeirra. „Við getum samt ekki bara gefið út aðvaranir um að þetta eða hitt fyrirtæki sé í eigu rockara. Þannig gengur þetta ekki fyrir sig í Danmörku," segir Madsen. „En við erum í auknum mæli að ná til þeirra sem starfa með rockurum í þessum fyrirtækjarekstri."Meðal dæma um rockara í fyrirtækjarekstri er Jens-Peter Kristiansen fyrrum forseti Hells Angels í Kaupmannahöfn. Jens hefur viðurnefnið „Smukke" og hefur afplánað 12 ára dóm fyrir þátt sinn í morðinu á „Makrílnum" fyrrum forseta Bandidos í borginni. Jens hefur m.a. stofnað félögn JR Entreprise Aps og KMS A/S og hann er forstjóri félagsins Selskabet af 31/12-2000.Annar háttsettur Hells Angels meðlimur, Brian Sandberg, hefur tengst flutningsfyrirtækjum og sendibílaleigum og hann rekur nú öryggisþjónustuna BS Consultancy. Síðastnefnda fyrirtækið útvegaði m.a. lífverði handa hinum þekkta fjársvikara Stein Bagger.Jan Bachman Nielsen forseti Bandidos í Hilleröd rekur fjölda fyrirtækja í samstarfi við eiginkonu sína. Má þar m.a. nefna Moles Entreprise og 21 og Århundrede 03 en hið síðarnefna á fatabúð, hárgreiðslustofu og verslar þar að auki með fasteignir.
Mest lesið Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira