Aðvörun: Bankavírusinn Zeus aftur í umferð 21. apríl 2010 12:39 Zeus virkar þannig að vírusinn skráir áslátt á lyklaborð tölvunnar þegar notandi hennar er á ákveðnum síðum þ.e. í sambandi við banka sinn eða aðrar fjármálastofnanir.
Tölvuvírusinn Zeus, sem hannaður er til að stela bankaupplýsingum, er aftur kominn í umferð í heiminum og breiðist hratt út að því er segir í frétt á BBC. Öryggisþjónustur á netinu vara við þessum vírus.Öryggisþjónustan Trusteer segir að Zeus sé nú að finna í einni af hverjum 3.000 tölvum af þeim 5,5 milljón tölvum sem þjónustan hefur eftirlit með í Bandaríkjunum og Bretlandi. Zeus sýkir einkum tölvur þar sem Firefox og Internet Explorer eru til staðar.Zeus virkar þannig að vírusinn skráir áslátt á lyklaborð tölvunnar þegar notandi hennar er á ákveðnum síðum þ.e. í sambandi við banka sinn eða aðrar fjármálastofnanir. Síðan sendir vírusinn þær upplýsingar til stjórnenda sinna sem selja þær áfram til tölvuþrjóta.Fram kemur á BBC að tekist hefði að stöðva Zues í síðasta mánuði. Það var gert með því að rekja vírusinn til stjórnenda sinna sem höfðu hýst hann í netþjónabúi í Kazakhistan. Þar tókst að eyðileggja stjórnkerfið fyrir Zeus.Nú er ný og öflugri útgáfa af Zeus tekin að herja á netinu. Amit Klein tæknistjóri Trusteer segir að reikna megi með tölvusvikamálum fjölgi verulega á næstunni. „Nálægt 30% þeirra sem stunda bankaviðskipti á netinu gera það í gegnum Firefox og sýkingin þar breiðist hraðar út en við höfum nokkurn tíma séð áður," segir Klein.
Mest lesið Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Viðskipti innlent Túnfisksævintýri Íslendinga endar með ósköpum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira