Lífið

Drekka bara kaffi

Kaffisjúk Jake Gyllenhaal og nýja kærastan hans, sveitasöngkonan Taylor Swift, eru sólgin í kaffi.
Kaffisjúk Jake Gyllenhaal og nýja kærastan hans, sveitasöngkonan Taylor Swift, eru sólgin í kaffi.

Sveitasöngkonan Taylor Swift og leikarinn Jake Gyllen­haal sáust í annað sinn saman á kaffihúsinu Frothy Monkey í borginni Nashville nú á þriðjudaginn var. Fylgst er með hverju skrefi parsins, sem hefur fengið gælunafnið „Jaylor" í anda Brangelinu.

„Jake er hrifinn af cappuccino með smá sírópskvettu út í og fannst kaffibollinn sérstaklega góður á Frothy Monkey," var haft eftir heimildarmanni. Þau virðast afskaplega sólgin í kaffi því þau hafa sést á hinum ýmsu kaffihúsum víða í Bandaríkjunum næstum daglega undanfarna viku.

Þau virðast heldur ekki nísk því samkvæmt einum kaffibarþjóni skildu þau eftir dágott þjórfé handa starfsfólki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×