Íslenski boltinn

Þórsarar tóku annað sætið af Leikni - ósigraðir fyrir norðan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigursteinn Gíslason, þjálfari Leiknis.
Sigursteinn Gíslason, þjálfari Leiknis.

Sveinn Elías Jónsson skoraði eina markið í toppleik Þórs og Leiknis í 1. deild karla í kvöld en leikurinn frá fram á Þórsvellinum á Akureyri. Þórsliðið hefur verið geysisterkt fyrir norðan í sumar og það var engin breyting á því í kvöld.

Þórsarar fóru með þessum sigri upp fyrir Leikni og upp í annað sætið í deildinni á betri markatölu en Breiðhyltingar. Víkingar eru áfram með þriggja stiga forskot á toppnum.

Sveinn Elías Jónsson skoraði sigurmarkið sitt í byrjun seinni hálfleiks en þetta var þriðja deildarmarkið hans í sumar.

Þórsarar eru því áfram taplausir á Akureyri í sumar, þeir eru búnir að vinna fimm leiki og gera tvö jafntefli í sjö heimaleikjum á Þórsvellinum og unnu síðan 2-0 sigur á KA í útileiknum á móti nágrönnum sínum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×