Lífið

Fórnar öllu fyrir draumastarfið í Bandaríkjunum

New york! New York! Líney heldur til New York í lok vikunnar og hefur störf á mánudaginn hjá einu stærsta almannatengslafyrirtæki heims.
New york! New York! Líney heldur til New York í lok vikunnar og hefur störf á mánudaginn hjá einu stærsta almannatengslafyrirtæki heims.

„Ég er búin að skrifa undir tveggja ára samning. Ég flýg svo út á sunnudaginn og byrja á mánudaginn,“ segir markaðssérfræðingurinn Líney Inga Arnórsdóttir.

Líney, sem varð 25 ára gömul í júní, hefur þegið starfstilboð hjá Ketchum, sem er eitt stærsta almannatengslafyrirtæki heims. Allt benti til þess að hertar innflytjendareglur í Bandaríkjunum myndu hindra að hún gæti þegið starfið, en yfirmönnum fyrirtækisins tókst að sannfæra bandarísk stjórnvöld um að enginn væri hæfari í starfið.

„Það gekk upp í þetta skipti. Þeir buðu mér yfirmannsstarf þannig að ég fæ sérstakt landvistarleyfi,“ segir Líney. „Ég er mjög góð í tölfræði, þó að það hljómi fáránlega. Þannig að þeir sögðu að ég væri einhvers konar tölfræðisnillingur.“

Líney starfaði í sumar við skipulagningu You Are in Control-tónlistarráðstefnunnar sem fer fram í Reykjavík um helgina. Hún heldur svo á vit ævintýranna í New York að henni lokinni. Hún útskrifaðist á síðasta ári frá Miami-háskóla í Bandaríkjunum með hæstu einkunn á MA-prófi í almannatengslum. Líney og átta aðrir útskriftarnemar voru valdir úr hópi 700 umsækjenda í starfsnám hjá Ketchum og að því loknu var henni einni boðið áframhaldandi starf.

„Ég lít á þetta sem fjárfestingu í starfsferli mínum,“ segir Líney. „Þetta verður ógeðslega erfitt. Þetta er eitt stærsta almannatengsla-fyrirtæki heims og það eru mörg hundruð manns að keppa um hverja stöðu. Ég þurfti að fórna öllu til að fá stöðuna.“

Líney er ekki að ýkja enda eru viðskiptavinir fyrirtækisins risar á borð við Kodak, FedEx, IKEA, Nokia og Rússland. „Ég er í alvörunni að fara að vinna með pressuvél Pútíns, sem er svolítið klikkað,“ segir Líney að lokum í laufléttum dúr.

atlifannar@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×